Always look on the bright side of life...

23.9.12

Lambakjöt - besta kjötið

Eftir frekar slæma helgi matarlega séð með tilheyrandi brauð- og kökuáti, kaffiþambi og óreglulegum máltíðum (mjög góð helgi að öllu öðru leyti) langaði mig í alvöru MAT. Lambakjöt varð fyrir valinu enda besta kjötið. Ég ólst upp við lambakjöt, í kistunni var alltaf til lambakjöt og í seinni tíð var iðulega grillað lambakjöt í matinn um helgar, ferskt og nýkryddað, ekki gamalt kjöt marinerað til að fela skert gæði. Þegar ég flutti að heiman áttaði ég mig á hve mikil forréttindi það voru að hafa aðgang að góðu og ódýru lambakjöti enda er það rándýrt út úr búð - og er afar sjaldan í matinn hjá mér.

Átti tvær lærissneiðar í frystinum og ákvað að draga fram "tagínuna" mína, eldfast fat með sérstöku loki (sjá mynd hér að neðan) sem notað er til að hægelda mat, einkum kjötmeti. Nota fatið sjaldan (hugsanlega vegna þess að tímafrek matseld hentar illa upptekinni manneskju eins og mér) en nú var lag. Fann fyrirmynd að uppskrift á lambakjot.is, hér er mín útfærsla:

Kjötið brytjað í grófa bita og sett í fatið ásamt grófskornum lauk. Sett í 200°C ofn í 10 mínútuar. Síðan var hvítlauk, gulrótum og rauðri papriku bætt út í ásamt rósmaríni og hvítvínsdreitli sem lá undir skemmdum í ísskápnum. Lokið sett á fatið, hitinn lækkaður í 150°C og látið malla í 1,5-2 klst (jafnvel lengur og við lægri hita ef tími gefst). Undir lok eldunartímans var hitinn hækkaður í 200°C, lokið tekið af og látið brúnast í ca 10-15 mínútur. Saltað og piprað eftir smekk. Með þessu var kartöflumús. Soðið smælki, smjör, mjólkurlögg, múskat, salt og hvítur pipar. Kartöflurnar maukaðar gróflega með kartöflustappara og smakkað til með hinu sem talið var upp. Dásamlega bragðgott - og tilvalið að nýta haustuppskeruna.

Í eftirmat útbjó ég meinholla súkkulaðimús. Vel þroskuð lítil lárpera, bútur af vel þroskuðum banana, slatti af kakói, hunang, smá salt og vanilludropar. Allt maukað í matvinnsluvél. Engin uppskrift hér, kakói, hunangi, salti og vanilludropum blandað út í eftir smekk. Frábærlega einföld, holl en góð mús sem fullnægir sætindaþörfinni vel. Sjá myndir hér að neðan.

21:35 | # | 

Lárperusúkkulaðimús

Published with Blogger-droid v2.0.9
21:17 | # | 

Lamb og kartöflumùs

Published with Blogger-droid v2.0.9
21:09 | # | 

Lamb í tagínu

Published with Blogger-droid v2.0.9
21:08 | # | 
20.9.12

Einfaldur rækjuréttur

Einn eftirlætis heilsu-matar-bloggarinn minn er (var?) Ella Helga. Hún hefur reyndar ekki bloggað í háa herrans tíð en á myndarlegt uppskriftasafn sem ég nýti mér stundum.

Í kvöld eldaði ég rækjur og hafði þennan rétt sem fyrirmynd. Mín útgáfa var eftirfarandi:

Léttsteikti lauk á pönnu, bætti hvítlauk, jalapeno og spergilkáli út í ásamt tveimur vel þroskuðum tómötum. Lét malla í smá stund og kryddaði með cumin, oregano, salti og sítrónusafa. Rækjum bætt við í lokin og hitaðar í gegn. Átti þennan brakandi ferska hvítkálshaus og notaði blöð af honum undir réttinn. Kotasæla ofan á, vafið saman og neytt. Hrikalega gott. Hef oft gert eitthvað svipað og notað íssalat en er ekki frá því að hvítkálið sé betra. Þykkara, stökkara og brotnar síður. Frábærlega einfaldur, fljótlegur og hollur réttur!


Rækjurèttur

Published with Blogger-droid v2.0.9
22:01 | # | 
12.9.12

Meira blogg

Ég er ekki hætt. Paleotilraunin var mér virkilegur blogginnblástur svo ég ákvað að halda áfram að blogga. Um heilsu, mataræði, næringarfræði og annað því tengt. Kannski dusta ég rykið af gömlum bloggfærslum sem fjalla um næringarfræði, nóg er til.

Hafragrauturinn bragðaðist dásamlega á laugardaginn og hreina lífræna jógúrtin líka. Annars hef ég haldið heilsustrikinu (veiii) þrátt fyrir að hafa aftur tekið inn bráðdrepandi fæðuflokkana kornmeti og mjólkurvörur. Bakaði aftur pönnsur (nú með bláberjum) og hef reynt að halda kolvetnum í hófi, ekkert brauð, ekkert sælgæti, enginn bjór og nánast ekkert súkkulaði. Hef fína orku og er ofsalega mjó.

Rauðrófur eru frábærar. Þær eru bragðgóðar, hollar og svona líka fallegar á litinn. Nú eru þær nýuppteknar og ferskar - mér finnst þær góðar í salöt og súpur. Man enn þegar ég smakkaði ofurbleika súpu í Berlín, rússneska rauðrófusúpu (borsch). Hafði aldrei séð jafn fagurbleikan mat. Hér er mín útgáfa af bleikri súpu:

Laukur og hvítlaukur mýktur í smjöri. Cumminfræjum og söxuðum rauðum chilipipar bætt út í. Þar á eftir er sett (rótar)grænmeti að vild, í litlum bitum: rauðrófur, rófur, gulrætur, hvítkál, blómkál, kartöflur eða sætar kartöflur (kartöflurnar eru kolvetnaríkari og auka þar með orkugildið). Í súpuna hér að neðan notaði ég kartöflur, rófur og blómkál auk rauðrófanna. Soðið í ca 30-40 mínútur. Kryddað með grænmetisteningi og salti. Maukað í matvinnsluvél. Ég bætti kókosmjólk út í (fer vel með chili & cumin) en líka má nota jógúrt eða sýrðan rjóma. Dásamlega góð súpa og muna að nota nóg af ferskum chili svo súpan rífi almennilega í!


Falleg bleik súpa.

Published with Blogger-droid v2.0.9
19:20 | # | 
7.9.12
Síðasti dagurinn - í bili
 
Þá er fimm daga paleo tilrauninni minni senn lokið! Fyrst matseðill dagsins (og myndir neðar að vanda):
Morgunn: BC æfing kl. 7:30 þannig að í gærkvöldi bakaði ég þriðju útgáfuna af pönnukökum, að þessu sinni gulrótarkökupönnsur. 2 egg + 1 hvíta + 20g möndlur + 1/2 maukaður banani + 1 dL gulrætur + nokkrar rúsínur + kanill + negull + smá salt. Namm! Hrikalega góðar þessar og eflaust góðar í sunnudagskaffinu líka. Borðaði einn banana fyrir æfingu, maulaði á einni pönnsu og nektarínu strax eftir æfinguna og restin var borðuð með kaffibolla í vinnunni. Bragðast ekki síður vel kaldar. Reyndar var ég eins og aumingi á æfingunni, hugsanlegar orsakir: fyrsta morgunæfingin síðan í vor (þarf að venjast), krefjandi hlaupaæfing kl. 18 í gær (líklegasta skýringin), mataræðið?

Hádegi: Kjúklingur m/hnetusmjöri og spínati, uppskrift úr Gestgjafanum. Kjúklingalundir í bitum steiktar á pönnu og sett til hliðar. Laukur, sveppir, hvítlaukur og rautt chili steikt á pönnunni, þá var söxuðu spínati bætt út á, smá hnetusmjöri og vatni. Kjúklingnum síðan bætt út í. Með þessu var gufusoðið spergilkál. Mettandi og gott en smá sykurlöngun eftir matinn sem slökkt var með ferskum döðlum og ristuðum kókosflögum. Langaði ekki einu sinni í hina vikulegu föstudagsköku hjá kokkinum. Húrra fyrir mér!

Var orðin vel svöng síðdegis. Kom heim, þreytt eftir vinnuvikuna og viðurkenni að mig langaði smá í brauð og ost. En fékk mér paleokost í staðinn - smurði roastbeef sneiðar með hvítlauksmæjóinu mínu (ó þvílík snilld!), setti spínat, rauðlauk og rauða papriku og vafði þessu upp. Hrikalega gott (hef oft gert svona áður, stundum með skinku, sinnepi og/eða rjómaosti) en kjötið var annars flokks - álegg í bréfi og þegar ég ætlaði að opna umbúðirnar sá ég að mjólkurpróteini hafði verið bætt við. Úps. Borðaði það samt. Hægt er að fá mjög gott roastbeef í Kjöthöllinni á Háaleitisbraut, mæli með því. Með þessu fékk ég mér ananas og var södd fram að kvöldmatartíma. Venjulega er þessi tími dags mér erfiður en var það ekki núna.

Var ekkert brjálæðislega svöng í kvöldmatnum, útbjó hinn fallegasta salatdisk með spínati, kokkteiltómötum, gúrku, rauðlauk, eggi og reyktum laxi. Og auðvitað var hvítlauksmæjóið á kantinum! Er ekki orðin svöng aftur og klukkan er að verða níu. Ég hlýt að vera að veikjast.... undarlegt!

Þannig er nú það! Tilraunin gekk merkilega vel. Ekkert svindl sem heitið getur og ég hef ekki haldið út "kúr" (ef kúr skyldi kalla) í svona langan tíma (heila FIMM daga) síðan ég var á herbalife fyrir ca 13 árum (já já, allir eiga sín bernskubrek). Hins vegar er þetta mataræði mjög líkt mínu venjulega mataræði í heilsugír nema það vantar einkum hafragraut, múslí, bygg, skyr, hreina jógúrt, AB-mjólk, smjör og ost. Já og dökkt súkkulaði. Auðvitað snýst þetta bara um að borða holla og fjölbreytta fæðu, eins lítið unna og mögulegt er. Síðan í vor hef ég verið með mottóið "minni sykur, meiri fita", fór að kaupa fullfeita AB-mjólk og jógúrt og feitari ost. Fann sykur- og nartlöngun minnka og ekki fitnaði ég! En hér eru nokkur atriði sem ég hef lært á þessari viku:

Þarf að borða meira á morgnana.
Ristaðar kókosflögur eru snilldarnasl. Þar sem um léttar og þunnar flögur er að ræða þá er maður heillengi að maula þær og innbyrðir minna heldur en t.d. ef um hnetur eða möndlur væri að ræða.
Pönnukökurnar eru klárlega eitthvað sem ég ætla að nota áfram.
Malaðar möndlur eru frábærar í stað hveitis.
Fékk fullt af hugmyndum við að skoða hinar ýmsu paleo-uppskriftasíður, einkum hvað varðar eftirrétti og kökur :)
Prófaði að útbúa mitt eigið majónes, verður klárlega endurtekið.
En mikið hlakka ég til að fá mér hafragraut í fyrramálið!












21:14 | # | 

Síðasta kvöldmáltíðin: Grænmeti, lax, egg, aioli.

Published with Blogger-droid v2.0.9
19:36 | # | 

Kaffi: Roastbeef vefjur m aioli, spínati, papriku og raudlauk. Ananas.

Published with Blogger-droid v2.0.9
16:10 | # | 

Hádegi: Hnetusmjörs- og spínatkjúklingur m spergilkàli.

Published with Blogger-droid v2.0.9
12:26 | # | 

Gulrótarkökupönnsur.

Published with Blogger-droid v2.0.9
10:01 | # | 
6.9.12

Lærdómsrík lexía

Fjórði dagur að kveldi kominn. Og ég er engin boost manneskja (afsakið enskuskotið). Þar sem ég var tímabundin í morgun ákvað ég að skella í bláberjabombu í stað þess að baka pönnsur. Var ekki almennilega södd og gjörsamlega glorsoltin í hádeginu (þrátt fyrir millimál). Og sykurlöngun eftir matinn! Dreg þá ályktun að líklega hef ég ekki borðað nægilega mikið á morgnana hingað til - og það dregur dilk á eftir sér allan daginn. Var frekar þung á mér á hlaupaæfingu - hef verið léttari á mér en hef líka verið þyngri á mér. Hugsanlega spilar inn í að í gær var nokkuð erfið lappaæfing í BC, lærin voru þung í dag. Þannig að ég treysti mér ekki til að segja hvaða áhrif mataræðið hafði. En já - maturinn (nenni ekki að setja matinn inn í Fitbook í kvöld, úrvinda eftir æfinguna):

Morgunmatur: Bláberjabomba: Fersk bláber (sem ég týndi, bragðast betur en önnur ber) + malaðar möndlur + hörfræ + ferskur ananas + frosin jarðarber + klaki. Bragðaðist afskaplega vel! Steikti afgangs eggjahvítu sem ég átti en hefði mátt borða meira prótein í morgunmatnum, ein hvíta inniheldur ekki mikið prótein.

Millimál: Epli með 1 kúfaðri tsk hnetusmjöri. Gamalkunnug en góð samsetning.

Hádegi: Bökuð sítrónubleikja (sítrónusneiðar lagðar yfir bleikjuna og saltað smá, einfalt og gott) með bökuðum sætum kartöflum og sellerírót. Nokkrir kokkteiltómatar með. Nappaði mér svo nokkrum endum af lambalæri sem var í boði í mötuneytinu (ó lambakjöt er svo gott!). Þrátt fyrir þennan mat þá fékk ég sykurlöngun eftir matinn. Leyst með ferskum döðlum, kaffibolla og kókos/pekanhnetuskammti dagsins. Aaahh... já, borðaði litla nektarínu fyrir hádegismatinn (11:55 - var að farast úr hungri).

Í kaffinu borðaði ég aðra litla nektarínu, þrjár gráfíkjur og banana. Ágætis kolvetnaskammtur fyrir hlaupaæfinguna ógurlegu.

Kvöldmaturinn var afgangur af gúllassúpunni góðu og afgangur af kjúklingabringu sem ég dýfði í dýrlega hvítlauksmæjónesið mitt - það bragðaðist betur í dag en gær, hvítlauksbragðið komið vel í gegn og finn ekki bragðið af ólífuolíunni lengur.

Maulaði svo á nokkrum ristuðum kókosflögum meðan ég útbjó nesti morgundagsins. Niðurstaða: Hlaut að koma að sykurlönguninni! En langaði samt ekkert í neina óhollustu, bara í döðlurnar og kókosflögurnar. Og ekkert svindl! Ég er alveg að standa mig.

22:53 | # | 

Kvöldmatur: Afgangur af gúllassúpu.

Published with Blogger-droid v2.0.9
20:47 | # | 

Sítrónubleikja m sætum kartöflum og sellerýrót.

Published with Blogger-droid v2.0.9
13:10 | # | 

Bláberjabomba.

Published with Blogger-droid v2.0.9
07:32 | # | 
5.9.12

Rúmlega hálfnuð með tilraunina!

Dagur þrjú - og mér líður vel. Þetta er stórkostlega skemmtileg tilraun fyrir næringarfræðinörd. Mér leið ágætlega í dag, fannst ég þó aðeins orkulaus á hádegisæfingunni, þegar við gerðum froska með hoppi (sem er reyndar ein af mínum eftirlætisæfingum). Púlsinn rauk óeðlilega mikið upp - orsökin? Veit ekki. Síðan var ég orkulaus og fann að mig skorti næringu um fjögurleytið. Þá var gott að fá sér kaffibolla, döðlur og ristaðar kókosflögur!

Kosturinn við þetta mataræði er að maður má borða eins mikið og maður vill - ekki að ég troði mig endalaust út núna en ég borða vel af næringarríkri fæðu. Og ristaðar kókosflögur, hnetur og ferskar döðlur eru uppáhalds - og ég nýt þess án samviskubits og án þess að blóðsykurinn taki kipp.

Gallinn er einkum hversu tímafrekt þetta er. Er heima að elda öll kvöld þessa vikuna, sem betur fer er það sérlegt áhugamál en ég hef ekki alltaf tíma til þess að stússast í eldhúsinu öll kvöld. Síðan er ég enn á þeirri skoðun að hafragrautur, baunir, skyr og fleira slíkt eigi heima í hollu og fjölbreyttu mataræði. Aðalmálið er að halda blóðsykrinum stöðugum, sleppa hvítum sykri, hvítu hveiti og annarri unninni matvöru. Hvíti sykurinn er okkur lifandi að drepa held ég.

En nóg um það! Matseðill dagsins:

Morgunn: Kókos- og eplapönnukökur. Svipað og gærmorgun: 3 lítil egg + 10g malaðar möndlur + 10 g kókosmjöl + 1/2 stórt rifið epli. Steikt á pönnu úr smá kókosolíu. Setti rúsínur í nokkrar og það gerði gæfumuninn. Eplabragðið týndist, örugglega betra að setja minna af eplinu í deigið og rífa frekar ofan á tilbúnar pönnukökur. Að auki borðaði ég nokkur krækiber meðan ég bakaði pönnsurnar. Eins og í gær var ég vel mett fram eftir morgni, svo mett að mig langaði ekki í bananann sem ég ætlaði mér um tíuleytið. Borðaði bara helminginn af honum og helminginn eftir BC hádegisæfinguna.

Hádegi: Gúllassúpa, nautakjöt, kartöflur, laukur, spergilkál, paprika, hvítlaukur og tómatar í dós. Fitulítil máltíð þannig að ég borðaði 20g af möndlum á eftir. Skar þær gróft niður og ristaði á pönnu, setti kanil, rósmarín og chiliduft út á og 1 tsk af hunangi. Saltaði svo með maldon salti. Ótrúlega gott!

Kaffi: Var svöng og nett þung í höfðinu um fjögurleytið. Borðaði harðsoðið egg + litla nektarínu + nokkur vínber + 10g af ristuðum kókosflögum + 2 döðlur + drakk kaffibolla. Endurnærðist vel af þessu.

Kvöldmatur: Velti ýsu (200g) upp úr kókosmjöli og steikti úr örlítilli kókosolíu (eiginlega þurrsteikti). Haugur af fersku salati með (íssalat, kokkteiltómatar, rauð paprika, rauðlaukur, grænar ólífur) og heimatilbúið aioli! Aioli er fínt orð yfir hvítlauksmajones og loksins útbý ég mitt eigið majones. Húrra fyrir því! 100% paleo; eggjarauða, ólífuolía, hvítlaukur, sítrónusafi og salt. Dáldið sterkt ólífuolíubragð (held að í "venjulegu" majonesi sé oft notuð bragðlítil olía). Passaði mjög vel með fitusnauðum fiskinum (minna en 1% fita í ýsu) og ég þurfti ekki mikið (er ekki mikil mæjómanneskja og stutt í klígjutilfinninguna). Verst ég útbjó svo mikið magn, á eflaust aldrei eftir að klára.

Samantekt dagsins: flottur dagur, leið að mestu vel og vá hvað þetta er skemmtilegt! Sérstaklega þar sem vinkona mín tekur þátt í tilrauninni og líka þar sem rúmlega 100 aðrir úr BC/CF eru með í átakinu og það er virk grúppa á FB. Ég hugsa samt að lítill hluti haldi þetta út í 30 daga. En sjáum til :)

22:13 | # | 

Kvöld: Kókosýsa m heimatilbúnu aioli.

Published with Blogger-droid v2.0.9
20:21 | # | 

Hádegi: Gúllassúpa. Döðlur og ristaðar kókosflögur í eftirmat.

Published with Blogger-droid v2.0.9
13:49 | # | 

Morgunmatur: Kókos- og eplapönnsur.

Published with Blogger-droid v2.0.9
08:07 | # | 
4.9.12

Dagur tvö - enn á lífi!

Jahérna, lauk degi tvö án vandkvæða. Húrra fyrir mér! Húrra fyrir paleo! Í gærmorgun var ég svöng og ómöguleg en morgunmaturinn í dag svínvirkaði! Aftur fann ég hvorki sykurlöngun né nartþörf - meira að segja núna, rétt fyrir háttinn, er ég passlega mett! Reiknaði aftur hitaeiningarnar og borðaði ekki nema ca 1600-1650 he í dag. Húrra! Finnst það í raun fáránlegt miðað við hvað ég borða mikla fitu. En hins vegar er ég mjög lág í kalsíum (engin mjólk) og járni (sem kemur reyndar á óvart, borðaði egg, nautakjöt og brokkólí í dag!)C-vítamín var rúmlega 400% (RDS er 100%), kólesteról ríflega 200% og var einnig yfir 100% í A-vítamíni og fólínsýru.

Fann örlítinn höfuðverk af og til í dag en ég fæ stundum höfuðverk þannig að ég get ekki dregið þá ályktun að hann sé orsök mataræðisins (nú eða fráhvarfseinkenni). Eins fannst mér ég vera pínu gleymin og ekki í mínu besta stuði í kennslu í dag... en getur líka verið af öðrum orsökum. Fór óvenju oft á klósettið, var sípissandi... glýkógen í vöðvum binst vatni og hugsanlega var það að losna. Nú eða einhver bjúgur, hver veit? En neikvæðar aukaverkanir mataræðisins eru hægðatregða og kviðurinn er þaninn. Vonandi losnar brátt um tregðuna, annars bæti ég sveskjum við matinn svona eins og gamla fólkið...

En aðalmálið - matur dagsins (sjá myndir hér að neðan, gleymdi reyndar að taka mynd af síðdegiskaffinu!).

Morgunmatur: Banana- og möndlupönnukökur, uppskrift sem ég fann á netinu. 3 lítil egg + 20 g malaðar möndlur + einn stappaður banani + 1 tsk hörfræ. Kryddaði með kardimommudropum (smá "svindl") og steikti í kókosolíu. Borðaði með bláberjum (sem ég týndi um daginn). Og viti menn, þetta var sjúklega gott! Næst langar mig að prófa að blanda bláberjunum í deigið. Bragðgott, djúsí, hæfilega sætt og mettandi! Namm! Var mett fram eftir morgni og langaði EKKERT í hinn hefðbundna morgunkaffibolla - svo ég fékk mér te í staðinn.

Millimál: 2/3 af rauðu epli með ca 1 kúfaðri tsk hnetusmjöri (annað "svindl").

Hádegi: Nautasteik, ca 160 g, með kartöflu- og sellerírótarmús (50:50) og soðnu spergilkáli. Smá smjör út í músina ("svindl") og olífuolía á kálið. Náði ekki að klára allt nautakjötið (var með 195g). Tvær döðlur og kaffibolli ("svindl")eftir matinn.

Var ekki orðin svöng fyrr en kl. 17! Ótrúlegt alveg hreint (þjáist oft af nartlöngun og hungri um þrjú, fjögur)! Tók ca 35 mínútna æfingu í íþróttasalnum (var tímabundin en hey, betra er að æfa í 35 mínútur frekar en 0 mínútur), viðurkenni að ég fann aðeins fyrir nautakjötinu í mallakút meðan ég hlunkaðist á hlaupabrettinu.

Síðdegiskaffið var kjúklingasalat með íssalati, eplum, rauðlauk, furuhnetum, sítrónusafa og ólífuolía. Að auki smá skammtur af ristuðum kókosflögum og cashewhnetum. Vel útilátið og mettandi.

Var ekkert sérstaklega svöng í kvöldmatnum. Sauð blómkál og maukaði gróflega með smá smjöri ("svindl"). Borðaði músina með reyktum laxi (aftur "svindl" en æi átti laxinn til). Maulaði líka á ofnbökuðum rófum frá því í fyrradag.

Sem sagt: Fjölbreyttur matur, gleði og hamingja.

22:17 | # | 

Kvöld: Reykt bleikja m blómkàlsmús.

Published with Blogger-droid v2.0.9
20:40 | # | 

Hádegi: Naut, sellerírótar- og kartöflumús, spergilkál.

Published with Blogger-droid v2.0.9
12:26 | # | 

Morgunmatur: Banana- og möndlupönnsur med bláberjum.

Published with Blogger-droid v2.0.9
08:04 | # | 

Ýmislegt

Bloggarar